Úrsögn
Hreinsun rotþróa
Hreinsun rotþróa í Vaðnes landi er langt komin. Það eru orðin mörg ár síðan hætt var að setja miða á rotþrærnar um að þær hafi verið hreinsaðar. Eigendur fasteigna fá enga sérstaka tilkynningu um að rotþró við þeirra fasteign hafi verið hreinsuð.
Hægt er að fylgjast með hreinsunum rotþróa inn á seyra.is , þar á upphafssíðunni er svartur hnappur sem á stendur „Hvar er búið að hreinsa.“
Aðalfundur 2024
Félag landeigenda í Vaðnesi heldur aðalfund fimmtudaginn 12. september 2024 kl. 17:00 í sal Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30
Dagskrá
- Fundur settur, val á fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Framlagning ársreiknings 2023
- Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning
- Lagabreytingar
- Skýrslur nefnda
- Ákvörðun um árgjald
- Kosning formanns
- Kosning meðstjórnenda
- Kosning endurskoðenda
- Önnur mál
- Frágangur fundargerðar staðfestur, fundi slitið
Sveinn Guðmundsson frá Landssambandi Sumarhúsaeigenda verður gestur okkar á fundinum og mun hann fara yfir það sem er í vinnslu hjá félaginu.
Fundur þessi er boðaður í samræmi við samþykktir félagsins. Fundarboð er sent í bréfpósti til eigenda, birt á heimasíðu félagsins og sent í tölvupósti til þeirra sem hafa gefið upp netfang til stjórnar félagsins.
Stjórn
3. september 2024
Reykjavík 2. september 2024
Félag landeigenda í Vaðnesi – stjórn
Þátttaka í Vaðneshátíðinni
Hér væri gott að fá staðfesta þátttöku svo við getum áætlað magn af mat og drykkjum: https://fb.me/e/3GmVO3PBR
Skráning í afmælishlaup Vaðnes
Afmælishátíð Laugardaginn 5. ágúst
Fundargerð aðalfundar 2023
Aðalfundur félagsins var haldinn þann 29. mars 2023.
Aðalfundur 2023
Vaðnes – Félag landeigenda í Vaðnesi heldur aðalfund þriðjudaginn 25. apríl klukkan 18:00 í sal Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30, jarðhæð.
Dagskrá
- Fundur settur, val á fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Framlagning ársreiknings 2022

29. mars 2023