Aðalfundur 2024

Félag landeigenda í Vaðnesi heldur aðalfund fimmtudaginn 12. september 2024 kl. 17:00 í sal Eignaumsjónar, Suðurlandsbraut 30

Dagskrá

  1. Fundur settur, val á fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Framlagning ársreiknings 2023
  4. Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning
  5. Lagabreytingar
  6. Skýrslur nefnda
  7. Ákvörðun um árgjald
  8. Kosning formanns
  9. Kosning meðstjórnenda
  10. Kosning endurskoðenda
  11. Önnur mál
  12. Frágangur fundargerðar staðfestur, fundi slitið

Sveinn Guðmundsson frá Landssambandi Sumarhúsaeigenda verður gestur okkar á fundinum og mun hann fara yfir það sem er í vinnslu hjá félaginu.

Fundur þessi er boðaður í samræmi við samþykktir félagsins. Fundarboð er sent í bréfpósti til eigenda, birt á heimasíðu félagsins og sent í tölvupósti til þeirra sem hafa gefið upp netfang til stjórnar félagsins.

Stjórn
3. september 2024
Reykjavík 2. september 2024
Félag landeigenda í Vaðnesi – stjórn